Bláa nælan er einkennismerki okkar sem styðjum Bláan apríl og styrkjum þar með fræðslustarf um einhverfu fyrir börn, foreldra þeirra og aðstandendur.
Nælan er á stærð við tíkall og blái liturinn í merkinu er glerungur sem er bræddur inn í næluna, svo hún þolir þó nokkuð hnjask.
Með því að bera næluna hjálpar þú okkur að vekja athygli á málefnum barna á einhverfurófi, auk þess sem kaupverðið rennur beint í áframhaldandi fræðslustarf.
Við sendum næluna frítt heim í lúguna, svo þú þarft ekki einu sinni að fara út á pósthús. Heimsendingin tekur um 3 virka daga.
Takk fyrir stuðninginn!